"Heyrðu láttu mig sjá þetta fjandans kort “

Kona fann Alladín-lampa liggjandi í fjörunni.
Hún tók hann upp, pússaði hann og hvað haldið þið? Út úr lampanum steig andi. Furðu lostin konan spurði hvort hún fengi þrjár óskir
uppfylltar.Andinn svaraði: ” Neeei— vegna verðbólgu, stöðugs samdráttar, lágra launa í löndum þriðja heimsins og heiftarlegrar samkeppni um allan heim, get ég aðeins veitt þér eina ósk og hvers óskar þú þér nú ? “Án þess að hika sagði konan : ” Ég óska friðar í Mið-austurlöndum.
Sérðu þetta kort ? Ég vil að þessi lönd hætti að berjast hvert við annað.”Andinn leit á kortið og hrópaði : ” VVVáááááááá, er ekki í lagi með þig manneskja ! Þessi lönd hafa átt í stríði í þúsundir ára. Ég bý yfir miklum mætti, en svona rosalega máttugur er ég ekki ! “Ég held að þetta sé ekki framkvæmanlegt, þú verður að óska þér einhvers annars. “Konan hugsaði sig um augnablik og sagði svo: ” Okey, ég hef aldrei getað fundið rétta manninn, þú veist : sem er tillitsamur, skemmtilegur, finnst gaman að elda, hjálpar til við að þrífa húsið, er góður í rúminu, semur við fjölskyldu mína, er ekki alltaf að horfa á íþróttirnar og er mér trúr. Já, það sem ég óska mér er : Góður maður ! “Andinn gaf frá sér langt andvarp og sagði : ” Láttu mig sjá þetta fjandans kort “

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband